top of page
  • Twitter
  • Linkedin

Námskeið

Námskeið og fræðsla

Þekking og vitund starfsfólks er einn mikilvægasti þátturinn í öflugu upplýsingaöryggi. Við bjóðum fyrirtækjum og stofnunum upp á fræðslu og námskeið sem styrkja skilning stjórnenda og starfsfólks á áhættu, ábyrgð og bestu starfsvenjum á sviði upplýsingaöryggis.

Námskeiðin eru byggð á alþjóðlegum stöðlum, bestu starfsvenjum og áratuga reynslu af ráðgjöf og kennslu á sviði upplýsingaöryggis.

Sérsniðin námskeið

Við bjóðum upp á sérsniðin námskeið sem eru þróuð sérstaklega fyrir þarfir viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Námskeiðin eru sniðin að starfsemi, áhættu og regluverki sem á við um reksturinn.

Við höfum meðal annars þróað og kennt námskeið um:

  • ​Öryggisvitund og öryggismenningu starfsfólks

  • Persónuvernd og kröfur persónuverndarlöggjafar

  • Öryggi í hugbúnaðarþróun

  • Framkvæmd öryggisúttekta

  • Öryggiskröfur greiðslukortafyrirtækjanna (PCI DSS)

  • Upplýsingaöryggi fyrir stjórnendur og lykilstarfsfólk

Sérsniðin námskeið geta verið haldin innan fyrirtækis, á netinu eða sem vinnustofur fyrir stjórnendur og sérfræðinga.

Ef þú hefur áhuga á að skipuleggja námskeið fyrir þitt fyrirtæki eða stofnun er þér velkomið að hafa samband. Við aðstoðum við að móta námskeið sem styður við markmið og þarfir þinnar starfsemi.

Opin námskeið

Við bjóðum einnig reglulega upp á opin námskeið sem eru aðgengileg öllum áhugasömum og eru ekki bundin við ákveðið fyrirtæki eða stofnun.

​​

Slík námskeið eru til dæmis ætluð stjórnendum, sérfræðingum og starfsfólki sem vill efla þekkingu sína á sviði upplýsingaöryggis, persónuverndar og tengds regluverks.

Engin opin námskeið eru skipulögð á næstu vikum.

bottom of page