top of page
  • Twitter
  • Linkedin

Stefnumótun

Árangursrík stjórnun upplýsingaöryggis hefst með skýrri stefnu. Við aðstoðum fyrirtæki og opinbera aðila við að móta og innleiða stefnu sem skapar skýra sýn, skilgreinir ábyrgð og styður við markvissa áhættustýringu.

 

Með áratuga reynslu af ráðgjöf á sviði upplýsingaöryggis vinnum við náið með stjórnendum og lykilstarfsfólki að því að þróa stefnur sem tengja saman öryggi, rekstur og kröfur laga og reglna. Markmiðið er að tryggja að upplýsingaöryggi sé hluti af stefnumótun og stjórnarháttum fyrirtækisins – ekki einungis tæknilegt verkefni.

Við höfum meðal annars aðstoðað við mótun eftirfarandi stefna:

  • Öryggisstefnu

  • Persónuverndarstefnu

  • Aðgangsstefnu

  • Stefnu um öryggi í birgjasamböndum

  • Þróunarstefnu

  • Öryggisafritunarstefnu

  • Fjarvinnustefnu

Samhliða stefnumótun aðstoðum við viðskiptavini við að kortleggja og skilgreina ferli, ábyrgð og verklagsreglur sem tryggja að stefnurnar verði raunverulega innleiddar í starfsemi fyrirtækisins. Þannig verður upplýsingaöryggi hluti af daglegum rekstri og stjórnun.

Ráðgjöf okkar byggir á alþjóðlegum stöðlum og bestu starfsvenjum, þar á meðal ISO/IEC 27001, og er sniðin að rekstrarumhverfi og áhættum hvers viðskiptavinar.

bottom of page